Næring & jafnvægi
Lærðu að þekkja réttar næringarupplýsingar frá röngum með vísindum
Í þessu skjali finnur þú allt sem þú þarft að vita um járn, næringarfræðslu, upplýsingar um járnbætiefni og góðar járnríkar uppskriftir.
Járnskortur er einn algengasti næringarskorturinn og þá sérstaklega hjá konum. Skorturinn getur haft veruleg áhrif á heilsu og líðan og er því mikilvægt að hann sé greindur.
Þá er áhyggjuefni að á Íslandi hefur járnneysla minnkað frá síðustu landskönnun og engin kona á barneignaraldri nær ráðlögðum dagsskammti.