Næring & jafnvægi
Lærðu að þekkja réttar næringarupplýsingar frá röngum með vísindum
Þetta plöntupunktaskjal auðvelda þér að halda utan um hversu mörg plöntumatvæli þú borðar á viku svo þarmaflóran þín blómstri.
Þarmaflóran spilar stóran þátt í heilsu okkar og gegnir t.d. mikilvægu hlutverki í ónæmiskerfinu okkar og meltingu ásamt því að framleiða nauðsynlegar fitusýrur, vítamín og taugaboðefni.
Fólk sem borðar að minnsta kosti 30 mismunandi plöntumatvæli á viku virðist vera með fjölbreyttari þarmaflóru en fólk sem borðar færri en 10. Upp frá því spratt svokallað plöntupunktakerfi þar sem er miðað við að reyna að ná 30 plöntupunktum á viku.
Því fjölbreyttari plöntumatvæli sem við gefum þarmabakteríunum okkar, því fjölbreyttari geta þær orðið og því meiri „kunnáttu“ hafa þær.