Topp 10 næringarrík og ódýr matvæli sem þú verður að eiga í eldhúsinu

Topp 10 næringarrík og ódýr matvæli sem þú verður að eiga í eldhúsinu
Matarverð hefur hækkað mikið að undanförnu og á sama tíma dynja á okkur alls konar misvísandi upplýsingar um hvað við eigum að borða og hvað ekki. Ein lífseigasta mýtan er að heilsusamlegur matur sé dýr en það er hægt að finna ótal næringarrík matvæli á hagstæðu verði.

Guðrún Nanna Egilsdóttir næringarfræðingur segir að mestu máli skipti að velja heil, óunnin matvæli á borð við heilkorn og ódýra próteingjafa eins og egg, baunir og belgjurtir.

Þá sé mikilvægt að skipuleggja matarinnkaupin og eldamennskuna til að forðast matarsóun og draga úr kostnaði. Það verði að geyma matinn á réttan hátt og nýta afganga eftir bestu getu.

Guðrún tók saman lista yfir tíu næringarríkar matvörur á hagstæðu verði sem gott er að eiga og ríma vel við næringarráðleggingar. Að auki gefur hún hugmyndir um hvað gott gæti verið að matreiða úr þeim.

Matvörurnar tíu:

  1. Linsubaunir og aðrar baunir
  2. Hafrar
  3. Hnetusmjör
  4. Kartöflur
  5. Bananar
  6. Frosið grænmeti og ávextir
  7. Egg
  8. Kotasæla
  9. Frosnir fiskbitar
  10. Skyr

Marga rétti er hægt að gera ríflega af og annað hvort frysta eða taka með sér í nesti daginn eftir.

Fullt borð matar af næringarríkum og heilsusamlegum fæðukosti

Hafrar, kotasæla og hnetusmjör eru afbragðs góð næring. RÚV – Ragnar Visage

Fullt borð matar af næringarríkum og heilsusamlegum fæðukosti

Frosnir fiskbitar, frosið grænmeti og kartöflur eru afbragðs kostur í kvöldmatinn. RÚV – Ragnar Visage

0 comments

Leave a comment